Fasteignaland kynnir: Hraunkima sumarhúsalóð ásamt hlutdeild úr jörðinni Kolsstaðir II í Borgarbyggð við Hvítársíðu.
Um er að ræða hlutdeild úr jörðinni Kolsstaðir II, þ.e.a.s í eignarhluta félags frístundarbyggðar Kolsstöðum. Á jörðinni er einnig 84 fm hlaða byggð 1961 sem er í lélegu ástandi. Lóðin Hraunkimi 39 er séreign skráð 2.500 fm. Svæðið er skipulagt sumarhúsahverfi við Litlafljót í landi Kolsstaða II við Hvítársíðu. Lóðin er kjarri vaxin og er afar víðsýnt frá lóðinni. Við kaup á lóðinni fylgir 6,0600 % eignarhluti í jörðinni Kolsstaðir II.
Stutt er í þjónustu að Húsafelli sem er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða hér á landi, enda einstök náttúruperla í stórkostlegu landslagi. Veðursældin, skógurinn, heitar laugar, aðstaða og þjónusta fyrir ferðamenn. Á Húsafelli er sundlaug, golfvöllur, leiksvæði, tjaldsvæði, verslun og veitingar ásamt fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
Upplýsingar gefa:
Halldór Ingi Andrésson, löggiltur fasteignasali s. 897 4210 netfang: halldor@fasteignaland.is
Heimir Eðvarðsson, aðstoðarmaður fasteignasala s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is