Fífumói 9-11 , 800 Selfoss
94,8 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
Fasteignaland kynnir: 3 herb. 94,8 fm. íbúð með sérinngangi á neðri hæð við Fífumóa 9-11 á Selfossi.
Húsið er úr forsteyptum einingum og byggt árið 2005.
Lýsing eignar: Komið er inn í anddyri með fataskáp. Þvottahús með hillum. Geymsla innan íbúðar með glugga. Eldhús og stofa í einu alrými. Eldhús með ljósri viðarinnréttingu. Stofa með aðgengi út á lóð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og viðarinnréttingu. Tvö herbergi.
Gólfefni eru flísar og parket.
Skemmdir eru á parketi, m.a. eftir vegg sem hefur verið fjarlægður í stofu og rakaskemmdir, þar sem var ísskápur í eldhúsi. Rakaskemmd á vegg í herbergi. Leki frá baðkari.
ÍLS mælir sérstaklega með að eignin sé skoðuð með fagmönnum og að lagnir séu myndaðar. Ekki er vitað um ástand heimilistækja.
Vinsamlegast hafið samband við Halldór Inga Andrésson í sími 897 4210 eða halldor@fasteignaland.is til að fá frekari upplýsingar og bóka skoðun.