Suðurbakki 3, Glæsilegt heilsárshús við Ásgarðsbreiðu við Sogið.Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Suðurbakka 3 í landi Ásgarðs við Sogið í Grímsnes-og Grafningshreppi. Um er ræða 135,4 fm hús auk 8,8 fm geymslu eða samtals 144,2 fm samkvæmt þjóðskrá Íslands. Lóðin er 14.034 fm eignarlóð með glæsilegu útsýni yfir Sogið. Húsið er á steyptri plötu með hitalögn og byggt úr CLT krosslímdum timbureiningum, Ál/tré gluggar eru í eigninni og húsið klætt með álklæðningu (Stuðlaberg) frá Idex.is. Stór sólpallur, ca.105 fm með heitum potti (rafmagnspottur), girðingu og skjólgirðingu. Í þessu húsi er hitatúpa fyrir gólfhita og hitakútur fyrir neysluvatn. Þetta svæði er hitaveitusvæði. Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Þrjú herbergi, tvo með góðu skápaplássi. Inn af hjónaherbergi er stúkað af fataherbergi. Útgengi er úr hjónaherbergi út á suður veröndf. Tvö bað herbergi eru í eigninni, gesta WC með flísum á gólfi, upphengdu WC og fallegri dökkri innréttingu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengdu WC með fallegri dökkri innréttingu og granit stein á borði. Sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stofan er tvískipt sjónvarpsstofa/borðstofa með parketi og útgengi út á suðurverönd. Eldhús er með parketi á gólfi, dökkri viðarinnréttingu, eyju með kranit steini á borðum og vönduðum tækjum.
Geymsla þar sem gengið er inn af sólpalli.
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlíð).
Glæsilegt útsýni.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 40.000 ári.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang:
[email protected]Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang:
[email protected]Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang:
[email protected]Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali, s:692-3344, netfang:
[email protected]